Maðurinn með burstann fundinn

Frá leik Tyrklands og Frakklands á laugardaginn.
Frá leik Tyrklands og Frakklands á laugardaginn. AFP

Maðurinn sem beindi uppþvottabursta að Emre Belözoglu, fyrirliða knattspyrnulandsliðs Tyrklands í Leifstöð í gær er fundinn. Maðurinn heitir Corentin Siamang og er frá Belgíu. 

Tyrkir voru allt annað en sáttir við uppátækið og logaði Facebook-síða knattspyrnusamband Íslands með miður fallegum skilaboðum tyrkneskra stuðningsmanna í kjölfarið. 

Stuðninsmenn Tyrklands eru nú farnir að skilja eftir athugasemdir hjá Siamang á Facebook og þegar fréttin er skrifuð eru tæplega 4000 manns búnir að skrifa athugasemd við nýjustu mynd hans á samfélagsmiðlinum. 

Uppfært: Siamang er búinn að eyða Facebook-síðu sinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert