Landsmót UMFÍ sett í Kópavogi

Gyðjur svifu yfir áhorfendapöllunum á Kópavogsvelli í kvöld.
Gyðjur svifu yfir áhorfendapöllunum á Kópavogsvelli í kvöld. mbl.is/Golli

Landsmót Ungmennafélags Íslands var sett á Kópavogsvelli í kvöld að viðstöddum forseta Íslands, menntamálaráðherra, bæjarstjóra Kópavogs og formanni UMFÍ. Gengu keppendur á mótinu meðal annars fylktu liði inn á völlinn, listamenn komu fram og sýnd voru fimleikar og glíma.

Landsmótinu lýkur á sunnudag en mikið er lagt í það nú þar sem UMFÍ heldur jafnframt upp á 100 ára afmæli sitt.

Fjöldi fólks lagði leið sína í Kópavoginn til að berja augum hin ýmsu tónlistar- og íþróttaatriði. Auðsjáanlegt var að allir skemmtu sér vel þó svo að nokkrir regndropar féllu.

Hluti keppenda á landsmóti UMFÍ gengur inn á Kópavogsvöll í …
Hluti keppenda á landsmóti UMFÍ gengur inn á Kópavogsvöll í kvöld. mbl.is/Golli
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert