Vinokourov féll á lyfjaprófi í Frakklandshjólreiðunum

Alexandre Vinokourov fagnar sigri á fimmtu leið á laugardaginn, rétt …
Alexandre Vinokourov fagnar sigri á fimmtu leið á laugardaginn, rétt áður en lyfjaprófið var tekið. Retuers.

Hjólreiðakappinn Alexandre Vinokourov frá Kasakstan féll á lyfjaprófi sem tekið var í Frakklandshjólreiðunum á laugardaginn. Vinokourov varð fyrstur á þeirri leið sem farinn var á laugardag og var fyrir keppnina álitinn með þeim sigurstranglegri. Vinokourov varð hins vegar fyrir áfalli á fimmtu leið keppninnar þegar hann lenti í árekstri.

Vinokourov varð uppvís að því að nota aðgerðir til þess að auka súrefnisupptöku sem eru ólöglegar en vel þekktar í íþróttagreinum sem krefjast mikils þols. Lið hans Astana, tilkynnti þetta í dag og hefur dregið aðra keppendur sína út úr Frakklandshjólreiðunum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert