Líney Rut ráðin framkvæmdastjóri ÍSÍ

Líney Rut Halldórsdóttir.
Líney Rut Halldórsdóttir.

Líney Rut Halldórsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands fyrst kvenna. Líney tekur við starfinu af Stefáni Konráðssyni sem ráðið hefur sig sem framkvæmdastjóra Íslenskrar Getspár. Líney Rut Halldórsdóttir er 46 ára íþróttafræðingur og starfar sem deildarstjóri íþrótta- og æskulýðsdeildar Menntamálaráðuneytisins. Hún hefur starfað sem sviðsstjóri Afrekssviðs ÍSÍ og hefur víðtæka reynslu og þekkingu á starfi íþróttahreyfingarinnar.

Fjölbreyttur og stór hópur fólks, rúmlega 50 manns, sótti um framkvæmdastjórastarfið en framkvæmdastjórn ÍSÍ samþýkkti einróma á fundi sínum í hádeginu að ráða Líneyju Rut til starfans.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert