Löglegt mark dæmt af Chelsea

Bras Friedel hélt marki Blackburn hreinu á Stamford Bridge í …
Bras Friedel hélt marki Blackburn hreinu á Stamford Bridge í dag. Reuters

Chelsea og Blackburn gerðu markalaust jafntefli í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni en liðin áttust við á Stamford Bridge. Chelsea hefur 11 stig eins og Liverpool og Manchester United en Arsenal trónir eitt á toppnum með 13 stig.

Chelsea var sterkari aðilinn og átti nokkur góð marktækifæri en Brad Friedel markvörður Blackburn átti fínan leik á milli stanganna og bjargaði oft mjög vel. Chelsea tókst reyndar að koma boltanum í netið framhjá Friedel þegar Salomon Kalou renndi boltanum í netið eftir fyrirgjöf frá Brasilíumanninum Beletti en Kalou var dæmdur rangstæður og líkega var sá dómur rangur. Jose Mourinho, stjóri Chelsea, varð æfur þegar hann hafði séð atvikið aftur í sjónvarpinu og helti sér yfir fjórða dómara leiksins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert