Rakel og Aðalsteinn eru danspar ársins

Rakel Guðmundsdóttir og Aðalsteinn Kjartansson, danspar ársins 2007 í sveiflu. stækka

Rakel Guðmundsdóttir og Aðalsteinn Kjartansson, danspar ársins 2007 í sveiflu.

Stjórn Dansíþróttasambands Íslands hefur valið Danspar ársins 2007 þau Rakel Guðmundsdóttur og Aðalstein Kjartansson. Parið keppir í s-amerískum dönsum í flokki ungmenna með frjálsri aðferð, en þau keppa einnig upp fyrir sig í flokki fullorðinna. 

Á árinu 2007 urðu þau Íslands- og bikarmeistarar í sínum flokki og hafa tekið þátt í fjölmörgum alþjóðlegum keppnum á árinu. Þau sigruðu Norway International þar sem 14 pör tóku þátt og sömuleiðis Lotto Open en þar kepptu 6 pör.  Þau urðu í 6. sæti á Antalya International þar sem  41 par kepptu og í 18. sæti á Copenhagen Open en þar kepptu 28 pör.  Um síðustu helgi kepptu þau á HM í flokki fullorðinna og urðu í 55. sæti af 80 pörum.  Um næstu helgi keppa þau á N-Evrópumóti í flokki ungmenna.

Rakel og Aðalsteinn eru í 232. sæti af 3.000 pörum á heimslista alþjóðlega  dansíþróttasambandsins (IDSF). Þau hafa dansað saman í 3 ár og keppa fyrir Dansíþróttafélag Hafnafjarðar.

 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is