Í keppnisbann fyrir að stöðva nakinn mann?

Andrew Symonds stöðvaði nakta manninn með vel útfærðri tæklingu.
Andrew Symonds stöðvaði nakta manninn með vel útfærðri tæklingu. Reuters

Andrew Symonds er ekki vel þekktur á Íslandi en ástralski landsliðsmaðurinn í krikket á yfir höfði sér langt keppnisbann fyrir að stöðva mann sem hljóp nakinn inn á völlinn í landsleik Ástralíu og Indlands.

Þetta var ekki í fyrsta sinn sem að nakinn maður truflaði einbeitingu landsliðsmannanna í þessari viðureign og hafði Symonds fengið nóg þegar hann sá nýjan einstakling hlaupa nakinn í átt að honum. Symonds gerði sér lítið fyrir „tæklaði“ þann nakta líkt og gert er í ruðningsíþróttinni og lá maðurinn kylliflatur á eftir.

Öryggisverðir fjarlægðu síðan nakta manninn og verður hann útilokaður frá frekari heimsóknum á krikketviðburðinn. Symonds á hinsvegar yfir höfði sér harða refsingu þar sem að hann þótti beita mjög öflugum aðferðum  þegar hann felldi manninn.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert