Landsliðið í badminton tilkynnt

Íslenska landsliðið fagnar glæsilegum sigri í B-keppninni á síðasta ári. stækka

Íslenska landsliðið fagnar glæsilegum sigri í B-keppninni á síðasta ári. mbl.is/Golli

Árni Þór Hallgrímsson, landsliðsþjálfari í badminton, tilkynnti í dag hvaða átta leikmenn hann hefði valið til keppni á Evrópumótinu í Danmörku 12.-20. apríl en Ísland vann sér á síðasta ári keppnisrétt í flokki A-þjóða.

Liðið er þannig skipað: Atli Jóhannesson, Bjarki Stefánsson, Helgi Jóhannesson, Magnús Ingi Helgason, Katrín Atladóttir, Ragna Ingólfsdóttir, Sara Jónsdóttir og Tinna Helgadóttir.

Bjarki er eini nýliðinn í hópnum en hann hefur áður leikið unglingalandsleiki fyrir Íslands hönd.

Ísland er í riðli með Englandi, Frakklandi og Tékklandi. Sextán lið leika í A-deildinni og tvö þau neðstu falla en markmið íslenska liðsins er að ná 13. sæti eða ofar og halda sér í hópi bestu þjóða Evrópu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar


finnur.is