Íþróttir
| Morgunblaðið
| 10.6.2008
| 5:30
| Uppfært
7:24
Skylmingar: Þetta er stór áfangi fyrir mig
Eftir Albert Örn Eyþórsson, albert@mbl.is
Íslenskir keppendur voru sigursælir á Viking Cup-mótinu í skylmingum með höggsverði sem fram fór í Kaplakrika í Hafnarfirði um helgina en mótið er hið sterkasta sem hér er haldið alla jafna í greininni.
Ragnar Ingi Sigurðsson sigraði í karlaflokki og Þorbjörg Ágústsdóttir í kvennaflokki en bæði hafa áður landað titlum á þessu eina árlega alþjóðlega móti sem haldið er hérlendis.
Mótið er hluti af Satellite-mótaröðinni í skylmingum en alls eru haldin sex slík í Norður-Evrópu ár hvert og gefa þau stig á heimslistum en hvorki Ragnar né Þorbjörg hömpuðu titlum fyrsta sinni á þessu móti. Ragnar hefur unnið það átta sinnum alls og Þorbjörg þrívegis en árangurinn nú er sérstaklega ánægjulegur enda fjölgar erlendum keppendum ár frá ári og mótið þyngist sem því nemur.Þorbjörg sagði við Morgunblaðið að sigur hennar á Guðrúnu Jóhannsdóttur í úrslitaviðureigninni í kvennaflokki hefði verið stór áfangi fyrir sig.
Fjallað er um mótið bæði í Morgunblaðinu og 24 stundum í dag, rætt við þau Þorbjörgu og Ragnar Inga og fjallað um skylmingaíþróttina.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






