Sómi Íslands og sverð

Frá keppninni í Laugardalnum um helgina. stækka

Frá keppninni í Laugardalnum um helgina. Haraldur Guðjónsson

Morgunblaðið Eftir Albert Örn Eyþórsson, albert@mbl.is
Helgin var gjöful fyrir íslenskt skylmingafólk sem vann öll helstu gullverðlaun á Norðurlandamótinu í skylmingum með höggsverði. Að auki var helgin stór fyrir forkólfa íþróttarinnar hérlendis því opnuð var formlega Skylmingamiðstöð Norðurlanda að viðstöddum fyrirmennum og þar á meðal forseta Alþjóða-skylmingasambandsins sem vart átti orð yfir hversu vel á veg íþróttin er komin í þessu litla landi.

Viðbrögð forsetans eru skiljanleg. Ekki aðeins er aðstaða skylmingamanna í Laugardalnum til hreinnar fyrirmyndar heldur ríkir mikil fagmennska í þjálfun íþróttamanna íslenskra sem hirtu öll fjögur helstu gullverðlaun á mótinu og er slíkur yfirburðaárangur Íslendinga algjör undantekning á stærri mótum á borð við Norðurlandamót. Ekki aðeins voru Íslendingar sigursælir heldur voru nánast allir keppendur í úrslitum einnig Íslendingar með einni undantekningu.

Ítarleg umfjöllun um mótið er í Morgunblaðinu í dag.  

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí


finnur.is