Favre ekki hættur við að hætta

Favre ekki á leið í boltann á ný. stækka

Favre ekki á leið í boltann á ný. Reuters

„Allt tal um að ég sé á leið í sportið á nýjan leik er hjóm eitt og það stendur ekki til,“ segir ruðningsstjarnan Brett Favre, en sterkur orðrómur hefur verið uppi vestanhafs um að hann íhugaði endurkomu í boltann.

Aðeins eru fjórir mánuðir síðan kappinn tilkynnti þá ákvörðun sína að setjast í helgan stein eftir farsælan feril með Green Bay Packers í NFL deildinni. Aldurinn var enda farinn að segja til sín en Favre er 38 ára gamall.

Heimildir fjölmiðla um að kappinn hafi forvitnast um möguleika þess að spila aftur með Packers í sumar virðast hafa verið úr lausu lofti gripnar. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is