Íþróttir
| mbl
| 8.7.2008
| 10:49
Þorbjörg endaði í 18. sæti á EM
Þorbjörg Ágústsdóttir skylmingakona úr Skylmingafélagi Reykjavíkur endaði í 18. sæti af rúmlega 50 keppendum á Evrópumeistaramótinu skylmingum sem stendur yfir í Kænugarði í Rússlandi. Guðrún Jóhannsdóttir endaði í 40. sæti.
Þorbjörg fékk 8 stig fyrir árangurinn á mótinu og er hún í 102. sæti á heimslistanum. Þorbjörg vann fjórar viðureignir af alls fimm í riðlakeppninni og komst hún í 32 manna úrslit. Þar tapaði hún gegn Ekaterinu Fedorkinu frá Rússlandi sem vann síðan til bronsverðlauna á mótinu. Sophia Velikaia frá Rússlandi varð Evrópumeistari.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






