Ekkert er ómögulegt

Michael Phelps fagna sigri í sundkeppni Ólympíuleikanna.
Michael Phelps fagna sigri í sundkeppni Ólympíuleikanna. Reuters

Sundmaðurinn Michael Phelps er orðinn einn merkasti íþróttamaður sögunnar eftir að hafa unnið til átta gullverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking og þar með samtals unnið 14 ólympíugull á ferlinum. „Ekkert er ómögulegt,“ sagði Phelps eftir afrekin í Peking. Þótt hann hafi verið að tala þar um frábæran árangur sinn gæti þó ákveðin yfirlýsing verið fólgin í orðum hans, því leið hans til Peking var löng og ströng.


Skólaganga Michaels Phelps var ekki auðveld, sérstaklega ekki í fyrstu. Hann átti erfitt með að halda athygli og meðtaka upplýsingar og var stöðugt truflandi í kennslustundum. Einn af kennurum Phelps í æsku ráðlagði móður hans að leita til læknis og kom í ljós við níu ára aldur að Michael Phelps var með bæði athyglisbrest og ofvirkni, sem í daglegu tali er kallað ADHD. Ítarlega er fjallað um feril þessa mikla afreksmanns í íþróttblaði Morgunblaðsins í dag. 
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert