Ísland fer ekki á HM sama hvernig fer

Guðjón Valur Sigurðsson og félagar í íslenska landsliðinu fá kærkomna hvíld í janúar. stækka

Guðjón Valur Sigurðsson og félagar í íslenska landsliðinu fá kærkomna hvíld í janúar. mbl.is/Brynjar Gauti

Það hefur gætt misskilnings einhverra sem halda að ef Íslandi takist að vinna gull í handboltanum á Ólympíuleikunum vinni liðið sér sjálfkrafa þátttökurétt á HM 2009 í Króatíu.

Þannig er málum þó ekki háttað. Þar sem Ísland beið lægri hlut fyrir Makedóníu í upphafi sumars um laust sæti á HM í umspili varð ljóst strax þá að Ísland yrði ekki með á HM í Króatíu. Þannig sama hvernig fer hjá Íslandi í Peking munu íslensku leikmennirnir fá kærkomna hvíld í janúar næst komandi þegar heimsmeistarakeppnin í handknattleik fer fram. Ísland hefur verið með á öllum stórmótum frá því á EM 2000 í Króatíu.

En það þýðir ekki að hugsa um einhver önnur stórmót, heldur best að einblína bara á að klára keppni á þessum Ólympíuleikum í Peking með stæl. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Ólympíuleikar — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 29. apríl

Þriðjudaginn 10. apríl

Mánudaginn 23. ágúst

Fimmtudaginn 22. júlí

Miðvikudaginn 24. febrúar

Sunnudaginn 21. febrúar

Sunnudaginn 14. febrúar

Laugardaginn 12. desember

Fimmtudaginn 8. október

Föstudaginn 2. október

Fimmtudaginn 1. október

Miðvikudaginn 2. september

Þriðjudaginn 28. apríl

Föstudaginn 6. febrúar

Fimmtudaginn 28. ágúst

Miðvikudaginn 27. ágúst

Þriðjudaginn 26. ágúst

Mánudaginn 25. ágúst

Sunnudaginn 24. ágúst


finnur.is