Kenýamaður ólympíumeistari í maraþonhlaupi

Samuel Wanjiru nálgast markið í dag. stækka

Samuel Wanjiru nálgast markið í dag. AP

Samuel Wanjiru frá Kenýa varð í dag ólympíumeistari í maraþonhlaupi. Er þetta í fyrsta skipti, sem Kenýamaður vinnur þessa grein. Wanjiru setti jafnframt ólympíumet þegar hann hljóp 42,15 km um götur Peking á 2 stundum, 6 mínútum og 32 sekúndum. 

Wanjiru, sem er 21 árs, setti heimsmet í maraþonhlaupi 18 ára og hefur tvívegis slegið það síðan.

Jaouad Gharib frá Marokkó varð annar í hlaupinu og Eþíópíumaðurinn   Tsegay Kebede varð þriðji.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Ólympíuleikar — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 29. apríl

Þriðjudaginn 10. apríl


finnur.is