Íþróttir
|
Ólympíuleikar
| mbl
| 24.8.2008
| 9:45
Snorri Steinn varð næst markahæstur
Snorri Steinn Guðjónsson varð í öðru sæti yfir markahæstu leikmenn handknattleikskeppni Ólympíuleikanna. Brynjar Gauti
Snorri Steinn Guðjónsson varð næst markahæsti leikmaður handknattleikskeppni Ólumpíuleikanna. Hann skoraði 48 mörk, einu færra en Spánverjinn Juan Garcia. Guðjón Valur Sigurðsson varð í þriðja sæti með 43 mörk.
Nikola Karabatic, sem reyndist íslenska landsliðinu erfiður í úrslitaleiknum í morgun, varð í sjötta sæti með 37 mörk.
Hægt er að skoða listann í heild hér.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






