Íþróttir
|
Ólympíuleikar
| mbl
| 24.8.2008
| 10:09
Stórkostlegt að standa á pallinum
Snorri Steinn Guðjónsson sagði í samtali við Sjónvarpið, að tilfinningarnar væru blendnar eftir leikinn við Frakka. „En það er stórkostlegt að stíga upp á pall á ólympíuleikum," sagði hann.
Snorri Steinn sagði, að Íslendingar hefðu einfaldlega mætt ofjörlum sínum í leiknum. Frakkar hefðu spilað frábærlega og séu besta lið heims. „Við vorum vel innstilltir í þetta, gáfum allt í leikinn og gerðum það sem við gátum. "
Guðjón Valur Sigurðsson sagði að tilfinningin væri slæm vegna þess að íslenska liðið hefði spilað illa. „En þetta er meira en hægt var að ætlast til í upphafi og við erum með eitthvað um hálsinn," sagði hann.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






