Íþróttir
|
Ólympíuleikar
| mbl
| 28.8.2008
| 9:20
Heilsað upp á hetjurnar
Íslendingum gefst kostur á að hitta handboltahetjurnar okkar í karlalandsliðinu í návígi síðar í dag en þá árita landsmennirnir plaköt fyrir gesti og gangandi í Laugardalshöllinni.
Þar mun Handknattleikssambandið ennfremur taka mót styrk frá aðalstyrktaraðila sínum, Kaupþingi.
Allir eru velkomnir en athöfnin hefst kl. 16.15
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






