Átta tilnefndir á lokahófi akstursíþróttamanna

Björgvin Ólafsson stækka

Björgvin Ólafsson mbl.is

Á morgun, laugardag, verður akstursíþróttamaður ársins 2008 útnefndur en kjörinu verður lýst á lokahófi Akstursíþróttanefndar ÍSÍ og LÍA, landssambands íslenskra akstursíþrótta á Akureyri. 

Veitt verða Íslandsmeistaraverðlaun í öllum flokkum auk þess sem Akstursíþróttamaður ársins verður krýndur, en átta afreksmenn úr spyrnu, torfæru, ralli og brautarkappakstri eru útnefndir. Þeir sem eru  útnefndir eru:  Björgvin Ólafsson og Guðmundur Jóhannsson í Spyrnu, Ólafur Bragi Ólafsson og Ragnar Róbertsson í Torfæru, Ísak Guðjónsson og Pétur S. Pétursson í Ralli og Viktor Þór Jensen og Kristján Einar Kristjánsson í Brautarkappakstri.

Spyrna

Björgvin Ólafsson hóf keppni 1994 eftir að hafa starfað við keppnishald um árabil, aðallega með Bílaklúbbi Akureyrar.
Hann á að baki ýmsa titla í spyrnu og í sumar skilaði hann þeim einstaka árangri að sigra allar keppnir sem hann tók þátt í og lauk keppnistímabilinu með nýju íslandsmeti í götuspyrnu og sandspyrnu og Íslandsmeistaratitli í báðum greinum.

Guðmundur Jóhannsson byrjaði að keppa í kvartmílu 2007 og náði Íslandsmeistara titlinum í Götubílaflokki 2008.
Hann sýndi fádæma framfarir allt kepnistímabilið og sigraði í 4 keppnum af 5, auk þess sem hann setti fjögur Íslandsmet á árinu. Guðmundur sigraði einnig í 4x4 flokknum á Bíladögum á Akureyri.

Torfæra

Ólafur Bragi Ólafsson keppir Torfærunni í flokki sérútbúinna bíla (Unlimited Class). Hann hóf keppti fyrst árið 2006 á bíl sínum "Refnum" og lauk þá keppnistímabilinu í 6. sæti.
Ári síðar mætti hann margefldur til leiks og hafnaði í 2. sæti og hampaði loks Íslandsmeistaratitlinum þegar keppnistímabilinu lauk í ár.

Ragnar Róbertsson, þrefaldur Íslandsmeistari í torfæru, keppti í "Modified Class" flokki breyttra götujeppa á "N1 Willys" bíl sem hann smíðaði 1999. Ragnar tók þátt í 11 keppnum í ár og sigraði allar nema eina sem hann lauk í 2. Sæti.
Hann keppti í Noregi, Finnlandi, Svíþjóð og í þremur keppnum á Íslandi og lauk keppnistímabilinu sem Heimsbikarmeistari, Norðurlandameistari og Noregsmeistari í greininni

Rall

Ísak Guðjónsson er Íslandsmeistari í ralli sem aðstoðarökumaður og að margra mati talinn besti aðstoðarökumaður Íslands í gegnum tíðina.
Hann hefur keppt hér heima með Sigurði Braga Guðmundssyni Íslandsmeistara 2008 og enfremur tekið þátt í erfiðum rallkeppnum erlendis sem aðstoðarökumaður hjá öðrum Íslandsmeistara í greininni Daniel Sigurðssyni.

Pétur S. Pétursson átti við ofurefli að etja þegar hann hóf keppnisárið á miklu öflugri bíl en hann hafði áður keppt á. 
Bæði Sigurður Bragi Guðmundsson og Jón Bjarni Hrólfsson höfðu meiri reynslu og voru í sérflokki yfir heildina séð.  Pétur sýndi þó fljótlega svipaðann hraða og var þarmeð kominn í þennann „sérflokk“  sem skar sig afgerandi frá öðrum keppendum.  Fádæma góð frammistaða ásamt undirbúningi fyrir keppnistímabilið skapaði glæsilegan árangur og 2. sæti í Íslandsmeistaramótinu.

Brautarkappakstur

Kristján Einar Kristjánsson náði þeim einstaka árangri að fara sem Íslandsmeistari í karti í prófanir fyrir byrjunarformúlu FMBW í Bretlandi en enda í keppnissæti meistaraliðsins Carlin Motorsport í Bresku formúlu 3.
Þar keppti hann á móti ökumönnum með 3-6 ára forskot í formúlukappakstri. Kristján Einar keppti í landsflokki BF3 og tók sín fyrstu verðlaun á þriðju keppnishelgi mótaraðarinnar á F1 brautinni á Monza. Hann var 4. í stigakeppni ökumanna fram á mitt keppnistímabil en missti dýrmæt stig í framhaldi af árekstri í götukappakstrinum í Búkarest og lauk keppnistímabilinu í 7. sæti af 15 keppendum.

Viktor Þór Jensen keppti í Alþjóðaflokki Bresku Formúlu 3 í ár, en hann ók í landsflokki mótaraðarinnar í fyrra.
Hann mætti til leiks þegar ein keppnishelgi var búin og ók með Nexa liðinu sem er nýtt í BF3. Tæknilegir örðugleikar hjá liðinu sem er nýtt í BF3 settu mark sitt á keppnisárið og Viktor Þór hætti keppni eftir kappaksturinn á Brands Hatch um mitt tímabilið og tilkynnti að hann hygðist einbeita sér að næsta keppnistímabili. Hann lauk keppnistímabilinu í 19. sæti af 21 keppanda.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí


finnur.is