Íþróttir
| mbl
| 9.12.2008
| 10:07
Kjörinn í fræðslunefnd Alþjóða skylmingasambandsins
Nikolay Mateev, framkvæmdastjóri Skylmingasambands Íslands og þjálfari, var um helgina kjörinn í fræðslu- og útbreiðslunefnd Alþjóða skylmingasambandsins á þingi þess sem haldið var í París. Guðjón Ingi Gestsson, formaður Skylmingasambandsins, rétt missti af sæti í tækninefnd, eftir að kjósa þurfti aftur milli hans og Bandaríkjamanns, en þeir voru hnífjafnir eftir venjulega kosningu.
Miklar sviptingar voru í stjórnarkjöri á þinginu og m.a. varð forseti Alþjóða skylmingasambandsins undir í forsetakjöri. Hann tapaði með fimm atkvæða mun fyrir Rússa. Fráfarandi forseti er franskur.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






