Þorbjörg og Ragnar skylmingafólk ársins
Skylmingasamband Íslands hefur útnefnt þau Þorbjörgu Ágústsdóttur og Ragnar Inga Sigurðsson skylmingafólk ársins 2008.
Þorbjörg er núverandi Íslandsmeistari og ferfaldur Norðurlandameistari. Hún hafnaði í 18. sæti á Evrópumeistaramótinu 2008, sem haldið var í Kiev. Þetta var sterkasta mót ársins í skylmingaheiminum. Þorbjörg hafnaði í 1. sæti í kvennaflokki á Viking Cup 2008, alþjóðlegu skylmingamóti sem haldið er í Hafnarfirði ár hvert og er það hluti af Norður-Evrópubikars röðinni (Satellite-heimsbikarmót) sem gefur stig á heimslista Alþjóða-skylmingasambandsins (FIE). Þetta er sterkasta mótið sem haldið hefur verið hérlendis til þessa.
Ragnar vann öll mót sem haldin voru hér á landi á árinu. Hann varð Íslandsmeistari í 11 skiptið á árinu og varði Íslandsmeistaratitilinn í liðakeppni með liði sínu FH. Á síðasta keppnistímabili tók Ragnar þátt í þremur Satellite-heimsbikarmótum, í Kaupmannahöfn, Örebro og í Hafnarfirði. Ragnar vann keppnina í Hafnarfirði og komst í verðlaunasæti í Örebro. Samanlagður árangur á þessum mótum færði honum sigurinn í Norður-Evrópumótaröðinni. Ragnar náði fimmta Norðurlandameistaratitlinum á þessu ári. Auk þess að keppa hefur Ragnar Ingi staðið frábærlega vel að uppbyggingu skylmingastarfs í Hafnarfirði, en hann er aðalþjálfari skylmingadeildar FH.






