Guðrún vann skylmingarmót í Kanada

Guðrún stóð sig vel í Kanada um helgina. stækka

Guðrún stóð sig vel í Kanada um helgina. Morgunblaðið/hag

Guðrún Jóhannsdóttir landsliðskona í skylmingum, vann sigur á Quebec-meistarmótinu í skylmingum með höggsverði kvenna, sem fram fór í Kanada nú um helgina. Er þetta annað árið í röð sem hún vinnur mótið.

 Í undanúrslitum keppti Guðrún við Joelle Brisson frá Kanada og vann þá viðureign 15:10 og í úrslitum bar Guðrún sigurorð af kanadísku stúlkunni Wendy Yano 15:8.

Næst á dagskrá hjá Guðrúnu er heimsbikarmót í Frakklandi í byrjun febrúar þar sem íslenska landsliðið mun einnig keppa í liðakeppni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí


finnur.is