Ungir og efnilegir skylmingamenn

Nikolay Mateev. stækka

Nikolay Mateev. mbl.is/ Árni Sæberg

Sex erlendir keppendur taka þátt í skylmingakeppninni sem fram fer í Baldurshaganum undir stúkunni á Laugardalsvellinum. Alls munu um 40 keppendur, 20 ára og yngri og af báðum kynjum, reyna með sér í mótinu.

„Það koma keppendur frá Danmörku og Svíþjóð auk þess sem einn keppandi er frá Brasilíu, en það er skiptinemi sem hefur verið hér á landi síðan í haust,“ segir Nikolay Mateev, sem sér um skylmingakeppnina á leikunum.

Hann segir stefnuna að gera mótið stærra og viðameira með tímanum. „Það er ætlunin að sækja um að hafa þetta mót sem heimsbikarmót fyrir unglinga í framtíðinni,“ sagði hann og þá má búast við fleiri keppendum og jafnvel sterkari.

„Við ætlum að hafa þetta skemmtilegt hjá okkur og verðum með æfingabúðir fyrir alla keppendurna á miðvikudag, fimmtudag og föstudag og síðan er keppnin sjálf á laugardag og sunnudag,“ sagði Nikolay. Keppnin mun standa í Baldurshaga milli klukkan 9 og 17 á laugardag og 10 til 16 á sunnudaginn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar


finnur.is