Þorbjörg stóð sig vel í London

stækka

mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þorbjörg Ágústsdóttir, skylmingakona, varð í 47. sæti á heimsbikarmóti í skylmingum með höggsverði í London um helgina.

Þorbjörg vann fjórar af sex viðureignum sínum í riðlakeppninni og komst því í 64 manna úrslit þar sem hún tapaði fyrir franskri landsliðskonu, Clöru Jaquet, 15-8 og lauk keppni í 47. sæti.

Ingibjörg L. Guðlaugsdóttir var einnig meðal keppenda en hún komst ekki áfram úr riðlinum.

Þetta var fyrsta heimsbikarmótið á tímabilinu og mjög sterkt en 93 keppendur frá 11 löndum mættu til leiks.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí


finnur.is