Ísland á alþjóðlegt skylmingamót í Svíþjóð

Skylmingafólk grátt fyrir járnum. stækka

Skylmingafólk grátt fyrir járnum. Morgunblaðið/Eggert

Íslendingar munu eiga 12 fulltrúa á alþjóðlegu skylmingamóti með höggsverði, sem fram fer í Örebro í Svíþjóð nú um helgina. Mótið er liður í World Cup Satellite mótaröðinni og gefa átta efstu sætin stig á heimslista skylmingamanna.

Mótið, sem nefnist Le Duel, dregur til sín fjölda þátttakenda, meðal annars frá Finnlandi, Rúmeníu, Egyptalandi, Þýskalandi, Írlandi, Hollandi, Bretlandi, Danmörku og Litháen.

Fyrir hönd Íslands keppa:

Andri Már Guðmundsson
Guðjón Ragnar Brynjarsson
Gunnar Egill Ágústsson
Haraldur Þórir Hugoson
Hilmar Örn Jónsson
Hróar Hugoson
Ingimar Bjarni Sverrisson
Jón Þór Backman
Jónas Ásgeir Ásgeirsson
Ragnar Ingi Sigurðsson
Ragnheiður Guðjónsdóttir
Sævar Baldur Lúðvíksson

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar


finnur.is