Góður árangur hjá íslensku skylmingafólki
Íslendingar kræktu í tvenn verðlaun á heimsbikarmóti í skylmingum um helgina. mbl.is/Haraldur Guðjónsson
Íslendingar stóðu sig vel á heimsbikarmóti í skylmingum með höggsverði sem fram fór í Örebro í Svíþjóð um nýliðna helgi. Keppt var í þremur flokkum þ.e. karla- og kvennaflokki ásamt unglingaflokki þ.e. yngri en 16 ára. Íslendingar hlutu eitt gull og eitt silfur á mótinu.
Mótið var afar sterkt og eitt það sterkasta sem Íslendingar hafa tekið þátt í. Keppendur voru 47 í karlaflokki, 12 í kvennaflokki og 16 í unglingaflokki og voru þeir frá Svíþjóð, Finnlandi, Danmörku, Íslandi, Þýskalandi, Írlandi, Bretlandi, Lettlandi, Hollandi, Tékklandi, Rúmeníu og Egyptalandi. Tólf Íslendingar tóku þátt í mótinu, 11 karlar og ein kona. Sex þátttakendur voru frá Skylmingadeild FH og 6 frá Skylmingafélagi Reykjavíkur.
Í kvennaflokki keppti Ragnheiður Guðjónsdóttir og var þetta hennar fyrsta alþjóðamót í flokki fullorðinna enda ekki nema 17 ára. Hún stóð sig alveg prýðilega og lenti í sjötta sæti af 12.
Seinni daginn var keppt í liðakeppni og unglingaflokki 15 ára og yngri. Í unglingaflokknum keppti einn Íslendingur, hinn geysi efnilegi Hilmar Örn Jónsson sem er aðeins 15 ára. Hann gerði sér lítið fyrir og sigraði í sínum aldursflokki og hlaut þar með gullið. Úrslitaleikurinn var geysi spennandi þar sem Hilmar keppti við Finnan Samuel Muir og ekki var sýnt hvor hefði betur fyrr en rétt í lokin en Hilmar sigraði 15:13.
Í liðakeppninni tefldi Ísland fram þremur liðum af tíu í keppninni. Svo furðulega raðaðist í keppninni að Íslendingaliðin röðuðust saman þannig að þau þurftu að keppa innbyrðis til að ná inn í undanúrslitin. Þar bar sigur af hólmi lið 1 sem skipað var þeim Ragnari Inga Sigurðssyni, Sævari Baldri Lúðvíkssyni og bræðrunum Hróari og Haraldi Hugósonum.
Eftir að hafa sigrað Ísland 2 kepptu þeir við A lið þjóðverja og sigruðu 45:15. Í úrslitabardaganum tókust á okkar menn við afar sterkt lið Rúmenna og töpuðu 25:45.






