Þróttur nærri deildarmeistaratitli

Jóhann Sigurðsson, fyrirliði Þróttar (9) í þann mund að smassa …
Jóhann Sigurðsson, fyrirliði Þróttar (9) í þann mund að smassa boltann yfir netið til Stjörnumanna í leiknum í kvöld. Ómar Óskarsson

Þróttur Reykjavík hefur svo gott sem tryggt sér deildarmeistaratitilinn í blaki karla eftir að liðið lagði Íslands-, bikar-, og deildarmeistara Stjörnunnar, 3:0, á Íslandsmótinu í kvöld. Leikmönnum Þróttar vantar aðeins sigur í einni hrinu í þremur síðustu leikjum sínum á Íslandsmótinu til þess að deildarmeistaratitillinn sé þeirra.

Þróttur vann fyrstu hrinu í kvöld, 25:13, þá aðra 25:15 og þá þriðju 25:19.

Nánar verður fjallað um leikinn í íþróttablaði Morgunblaðsins í fyrramálið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert