Ísland með þrjá fulltrúa á skylmingamóti
Skylmingasamband Íslands sendir þrjá fulltrúa á heimsbikarmót kvenna í skylmingum með höggsverði, sem fram fer í Foggia á Ítalíu um næstu helgi.
Keppt verður í einstaklings- og liðakeppni, en fulltrúar Íslands eru þær Þorbjörg Ágústsdóttir, Guðrún Jóhannsdóttir og Sigrún Inga Garðarsdóttir.
„Takmarkið hjá Þorbjörgu og Guðrúnu er að komast í 32-manna úrslit og í liðakeppninni er markmiðið að ná inn í 16-liða úrslitin, það ætti að vera alveg raunhæft,“ segir Nikolay Ivanov Mateev, landsliðsþjálfari og framkvæmdarstjóri Skylmingasambandsins. Nikolay verður þó fjarri góðu gamni, því ekki reyndist unnt að senda sjálfan landsliðsþjálfarann með í mótið sökum sparnaðaraðgerða sambandsins.
„Það þarf að haga seglum eftir vindi í svona ástandi. Ég treysti þeim til að gera sitt besta án mín,“ sagði Nikolay.
Um er að ræða afar sterkt mót, sem gefur tvöföld stig á heimslistann, en þar situr Þorbjörg í 110. sæti, Guðrún er í 180. sæti og Sigrún Inga er í 262. sæti, en hún er aðeins 18 ára gömul.






