Íþróttir
| mbl
| 23.3.2009
| 10:56
Miglena, Masayuki og Piotr best í blakinu
Bestu leikmenn í 1. deild karla og kvenna í blaki voru útnefndir á uppskeruhátíð Blaksambands Íslands um helgina. Miglena Apostolova úr Þrótti í Neskaupstað var valin best í kvennaflokki en í karlaflokki deildu heiðrinum þeir Masayuki Takahashi úr Þrótti í Reykjavík og Piotr Kempisty úr KA.
Orri Þór Jónsson úr HK og Helena Kristín Gunnarsdóttir úr Þrótti í Neskaupstað voru valin efnilegustu leikmenn í 1. deild karla og kvenna.
Sjá nánar frétt á síðu Blaksambands Íslands um útnefningarnar, smellið hér.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






