Sex Norðurlandameistaratitlar
Íslenskt skylmingafólk gerði það gott á Norðurlandamótinu í skylmingum með höggsverði sem haldið var í Örebro um páskahelgina. Alls voru 24 keppendur frá Íslandi sem tóku þátt í mótinu og hömpuðu þeir sex Norðurlandameistaratitlum.
U15 Strákar
Hilmar Örn Jónsson sigraði í þessum flokki en hann keppti við Danann Sebastian Thoft Bringstrup og vann hann nokkuð örugglega 15:9. Viktor Ingi Guðmundsson lenti í 3. sæti. Böðvar Freyr Stefnisson endaði fimmti.
U15 Stelpur
Í þessum flokki komust allar íslensku stelpurnar í undanúrslit. Þórdís Ylfa Viðarsdóttir keppti við Aldísi Eddu Ingvarsdóttir í úrslitum og enduðu leikar með sigri Þórdísar. Saman í þriðja sæti voru Vigdís Hafliðadóttir og Diljá Hvannberg.
U18 Strákar
Í þessum flokki var æsispennandi lokabardagi milli tveggja íslenskra stráka en það voru þeir Jónas Ásgeir Ásgeirsson og Gunnar Egill Ágústsson sem áttust við. Viðureigninni lauk með eins stigs mun 15:14 Gunnari í vil.
U18 Stelpur
Þórdís Ylfa Viðarsdóttir tókst að tryggja sér sæti í úrslitum með sigri á Ulricu Ronquist frá Svíðþjóð 15:7. Í úrslitum keppti hún við Amöndu Sears frá Danmörku sem endaði með sigri Amöndu 15:9.
U21 Karlar
Í undanúrslitum voru þrír Íslendingar og einn Dani. Í öðrum undanúrslitaleiknum áttust við Norðurlandameistarinn frá því í fyrra Sævar Baldur Lúðvíksson og Gunnar Egill sem endaði með sigri Gunnars. Í hinum leiknum keppti Andri Már Guðmundsson við Danan Magnús Normann Jörgensen laug þeirri viðureign með sigri Danans. Það voru því Gunnar Egill og Magnús sem kepptu til úrslita í jöfnum og spennandi leik sem endaði með sigri Danans 15:13.
U21 KonurRagnheiði Guðjónsdóttur tókst að tryggja sér sæti í úrslitum með sigri á Rebecku Andersson frá Svíþjóð 15:13. Aldís Edda keppti við Amöndu Sears frá Danmörku í hinum undanúrslitaleiknum en tapaði honum. Það voru því Ragnheiður og Amanda sem áttust við í úrslitum. Ragnheiður hafði undirtökin á leiknum allan tímann og sigraði örugglega 15:8.
Fullorðinsflokkur kvennaÞorbjörg Ágústsdóttir náði að endurheimta Norðurlandatitil sinn mjög örugglega en hún sigraði Rebecku Andersson frá Svíþjóð 15:4. Fullorðinsflokkur karla
Norðurlandameistari síðustu ára Ragnar Ingi keppti ekki á þessu móti heldur var í hlutverki landsliðsþjálfara. Að þessu sinni tókst engum Íslendingi að feta í fótsport hans og endaði keppnin með sigri Finnans Olla Mahlamäki. Efsti Íslendingurinn var Haraldur Hugosson SFR sem náði fimmta sæti en þetta er hans fyrsta Norðurlandamót í fullorðinsflokki.
Garpar (+40 ára)Guðjón Ingi Gestsson náði að endurheimta Norðurlandatitil sinn í þessum flokki en hann sigraði fyrir fjórum árum einnig í Svíþjóð. Í undanúrslitum áttust við Ólafur Bjarnason og Jens Normann Jörgensen frá Danmörku sem endaði með sigri Danans. Guðjón keppti við Sviann Heinz Wolters og vann hann örugglega 15:5. Í úrslitum keppti því Guðjón og Daninn Jens Normann. Enduðu leikar með sigri Guðjóns 15:8.
Liðakeppni
Íslendingar sendu fimm lið til keppni í þessum flokki. Ísland 1 skipað þeim Sævari Baldri Lúðvíkssyni, Hróari Hugossyni, Haraldi Hugossyni og Þorbjörgu Ágústsdóttur kepptu til úrslita við Finnland 1 sem endaði með sigri Finnlands. Í þriðja sæti endaði síðan Ísland 2 skipað þeim Gunnari Agli Ágústssyni, Þórarni Snorra Sigurgeirssyni, Andra Má Guðmundssyni og Jóni Þór Backman en þeir töpuðu fyrir Íslandi 1 í undanúrslitum.






