Íþróttir
| mbl
| 18.4.2009
| 14:01
Elsa langfyrst í göngunni
Elsa Guðrún Jónsdóttir frá Ólafsfirði sigraði auðveldlega í 5 km göngu með hefðbundinni aðferð á Skíðamóti Íslands í dag og nældi þar með í þriðju gullverðlaunin á mótinu til þessa.
Elsa Guðrún fór brautina á 15,14 mín., önnur varð Rannveig Jónsdóttir frá Ísafirði á 16,38 mín. og þriðja Silja Rán Guðmundsdóttir, einnig frá Ísafirði, á 16,47 mín.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






