Sex íþróttamenn grunaðir um græsku á ÓL

Sex íþróttamenn eru grunaðir um að hafa fallið á lyfjaprófi sem tekið var af þeim ... stækka

Sex íþróttamenn eru grunaðir um að hafa fallið á lyfjaprófi sem tekið var af þeim á ÓL í Peking. mbl.is/Sverrir

Ítalskir fjölmiðlar greina frá því í kvöld að ítalski hjólreiðamaðurinn Davide Rebellin, sem vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking, hafi fallið á lyfjaprófi á leikunum. Alþjóða lyfjaeftirlitið hefur farið í gegnum sýni frá leikunum og notað nýjar aðferðir við að greina prófin. Í þeirri rannsókn kom í ljós að sex keppendur höfðu notað ólögleg lyf og fullyrða ítalskir fjölmiðlar að Rebellin sé einn þeirra.

Alls voru 948 blóðsýni rannsökuð á ný átta mánuðum eftir að keppni lauk á ÓL og reyndust einhverjir keppendur hafa notað nýja gerð af hormóninu EPO sem kallast CERA en það eykur þol þeirra sem nota það.

Alþjóðaólympíunefndin ætlar ekki að greina frá niðurstöðum fyrr en niðurstöður úr B-sýni liggja fyrir en á þessari stundu er aðeins búið að rannsaka svokallað A-sýni. Teknar eru tvær blóðprufur úr hverjum keppenda þegar þeir fara í lyfjapróf.  Fyrri blóðprufan er A sýni og sú síðari B sýni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Ólympíuleikar — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 29. apríl

Þriðjudaginn 10. apríl


finnur.is