Þrjár keppa á EM í skylmingum

Guðrún Jóhannsdóttir keppir á EM í Plovdiv. stækka

Guðrún Jóhannsdóttir keppir á EM í Plovdiv. mbl.is/hag

Þrjár íslenskar konur verða á meðal þátttakenda á Evrópumeistaramótinu í skylmingum sem fram fer í Plovdiv í Búlgaríu dagana 16.-19. júlí.

Það eru þær Guðrún Jóhannsdóttir, Gunnhildur Garðarsdóttir og Þorbjörg Ágústsdóttir, sem taka þátt í skylmingum með höggsverði. Þær taka þátt í einstaklingskeppni 16. júlí og í liðakeppni 19. júlí.

Nikolay Mateev, framkvæmdastjóri Skylmingasambands Íslands, sækir þing Evrópska skylmingasambandsins í Plovdiv 12. júlí og er þar í framboði til stjórnar sambandsins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí


finnur.is