Ástralskur atgangur við hæfi Íslendinga

Landsliðið á æfingu í gær. stækka

Landsliðið á æfingu í gær. mbl.is/Kristinn

Landslið Íslands í áströlskum fótbolta fer í dag til Króatíu þar sem það tekur þátt í EU Cup 2009. Keppt er í fjórum riðlum og er Ísland í riðli með Ítalíu, Þýskalandi og Hollandi. Mótið er hraðmót og leiknir stuttir leikir á litlum völlum. Í hraðmóti eru níu í liði, en annars eru 18 í liði.

Jón Hrói Finnsson, einn liðsmanna, segir ástralskan fótbolta vera nýja íþrótt hér á landi. Hann telur íþróttina eiga vel við keppnisskap Íslendinga. Hún er eins konar blanda af knattspyrnu, ruðningi, körfubolta o.fl. Talsvert er um pústra og tæklingar og leika menn m.a. með tannhlífar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí


finnur.is