IOC tekur ákvörðun um ÓL 2016 á morgun
Jacques Rogge. AP
Síðdegis á morgun mun Jacques Rogge forseti Alþjóða ólympíunefndarinnar, IOC, tilkynna hvaða borg fær að halda sumarólympíuleikana árið 2016. IOC hefur á undanförnum dögum fundað í Kaupamannahöfn í Danmörku en fjórar borgir eiga möguleika á að fá leikana, Chicago í Bandaríkjunum, Madrid á Spáni, Tókíó í Japan og Rio de Janeiro í Brasilíu.
Tókíó er eina borgin sem hefur haldið sumarleika áður en ÓL fór fram í borginni árið 1964 en það þykir skaða umsóknina að leikarnir fóru fram í Asíu árið 2008 þegar Kínverjar héldu glæsilega leika í Peking.
Evrópa fær leikana 2012 þegar keppt verður í London og þykir umsókn Chicago sigurstrangleg. Bandaríkin hafa fimm sinnum haldið sumar ÓL en leikarnir hafa aldrei verið í Suður-Afríku og Ríó gæti því átt góða möguleika.






