Stjörnurnar gætu skyggt á margra ára undirbúning

Forsetahjónin Barack Obama og Michelle Obama á fundi með IOC í Kaupmannahöfn. stækka

Forsetahjónin Barack Obama og Michelle Obama á fundi með IOC í Kaupmannahöfn. Reuters

Síðdegis í dag mun Alþjóða ólympíunefndin ákveða hvar Ólympíuleikarnir fara fram sumarið 2016 og koma fjórar borgir til greina í kosningunni. Margir stjórnmálaleiðtogar frá viðkomandi löndum sem keppa um leikana eru staddir í Kaupmannahöfn í Danmörku vegna kjörsins og þar ber hæst heimsókn Barack Obama forseta Bandaríkjanna.  

Norðmaðurinn Gerhard Heiberg er efins um að það sé rétt þróun að stjórnmálaleiðtogar og þekktir skemmtikraftar séu meira áberandi á lokastigum valsins. Hann telur að margra ára vinna undirbúningsnefnda falli í skuggann af slíkum heimsóknum.

Obama er ekki sá fyrsti sem nýtir slík tækifæri til þess að aðstoða sitt land við að landa ÓL. Vladimir Pútín gerði slíkt hið sama þegar Sotsji vann kjörið um vetraleikana 2014 og  Tony Blair fyrrum forsætisráðherra Bretlands var áberandi þegar London fékk sumarleikana 2012.

Nokkrir meðlimir í IOC hafa lýst yfir áhyggjum af þeirri þróun sem hefur átt sér stað. Þekktir skemmtikraftar, íþróttafólk og stjórnmálamenn standa þétt á bak við undirbúningsnefndina frá þeirra löndum og mæta á svæðið þegar IOC gerir upp hug sinn.  Norðmaðurinn Gerhard Heiberg á sæti í IOC og hann telur að IOC verði að setja ákveðnar „vinnureglur“ í aðdraganda kjörsins og hann telur að smærri ríki og borgir eigi varla möguleika að ná athyglinni í baráttunni við stórþjóðirnar.  

Á meðal þeirra sem eru staddir í Kaupmannahöfn til þess að styðja við bakið á umsóknum sinna landa má nefna knattspyrnumanninn Pele, en Rio de Janero í Brasilíu er á meðal þeirra fjögurra borga sem koma til greina. Luiz Inácio Lula da Silva, forseti Brasilíu, er mættur á svæðið og einnig Jóhann Karl, Spánarkonungur en Madríd sækir um leikana, líkt og Chicago í Bandaríkjunum og Tókíó í Japan.

Sjónvarpskonan Oprah Winfrey er einnig stödd í Kaupmannahöfn í þeim erindagjörðum að vekja athygli á umsókn Chicago.

„Undirbúningurinn fyrir slíka umsókn stendur yfir í mörg ár, og þær borgir sem sækja um kosta miklu fé til þess að koma sinni umsókn á framfæri. Þessi vinna á að vera aðalatriðið þegar við metum kostina sem eru í boði. Ef það eru ræður frá þekktum persónum rétt fyrir kjörið sem ráða síðan úrslitum þá tel ég að margir hugsi sinn gang og telja jafnvel að þeir hafi hent peningum út um gluggann í margra ára undirbúningsvinnu,“  sagði Heiberg í viðtali við norska dagblaðið Aftenposten í dag.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Ólympíuleikar — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 29. apríl

Þriðjudaginn 10. apríl


finnur.is