Samantekin ráð að hafna Chicago?
Bandarísku forsetahjónin Barack og Michelle Obama vöktu mikla athygli í Kaupmannahöfn í síðustu viku þegar Alþjóða ólympíunefndin, IOC, tók ákvörðun um að ÓL árið 2016 verði í Rio de Janiero í Brasilíu. Í frétt danska dagblaðsins Politiken í dag er því haldið fram að umsókn Chicago frá Bandaríkjunum hafi aldrei átt möguleika og þar hafi IOC beitt „refsiaðgerðum“ gegn Bandaríkjamönnum.
Í fréttinni er því haldið fram að bandaríska ólympínefndin (USOC) hafi lánað IOC verulegar fjárhæðir á síðustu öld vegna fjárhagsörðugleika IOC á þeim tíma. USOC samdi um að fá hluta af framtíðarhagnaði IOC allt fram til ársins 2012 og er talið að USOC fái um 57 milljarða kr frá IOC á þeim tíma.
Heimildarmaður Politiken segir að IOC hafi lagt hart að USOC að deila þessum peningum til aðildaþjóða IOC sem eiga undir högg að sækja fjárhagslega. USOC tók ekki vel í þá hugmynd og í IOC beitti sér í kjölfarið fyrir því að umsókn Chicago yrði hafnað.






