Erla Dögg stórbætir eigið met

Erla Dögg Haraldsdóttir bætti eigið Íslandsmet í 200 m fjósundi í morgun. stækka

Erla Dögg Haraldsdóttir bætti eigið Íslandsmet í 200 m fjósundi í morgun. Brynjar Gauti

Erla Dögg Haraldsdóttir setti í morgun Íslandsmet í 200 m fjórsundi á Íslandsmeistaramótinu í sundi í 25 m braut í Laugardalslaug þegar hún synti á 2.15,32 mínútum í undanrásum. Hún átti sjálf fyrra metið en það var 2.16,62. 

Í sama sundi setti Eygló Ósk Gústafsdóttir, Sundfélaginu Ægi,  nýtt telpnamet en hún synti á 2.20,10.

Íslandsmetið sem Erla Dögg setti í morgun var það tíunda sem sett er á mótinu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar


finnur.is