Sjö ára bið á enda

Jakob Jóhann Sveinsson.

Jakob Jóhann Sveinsson. mbl.is/Golli

Morgunblaðið Eftir Ívar Benediktsson, iben@mbl.is
„Skýringarnar á þessum framförum eru margar,“ sagði Jakob Jóhann Sveinsson, sundmaður úr Sundfélaginu Ægi, sem hreinlega sprakk út á Íslandsmeistaramótinu í sundi í Laugardalslaug um helgina. Jakob Jóhann bætti eigið met í 200 m bringusundi um þrjár sekúndur, um 1,3 sekúndur í 100 m bringusundi. Um leið varð hann fyrstur Íslendinga til þess að synda 100 m bringusund á skemmri tíma en einni mínútu, kom í mark á 58,91 sekúndu.

Árangurinn í 100 m bringusundinu er annar besti tími í Evrópu í greininni á þessu sundári sem miðast við 1. ágúst og jafnframt annar besti árangur Norðurlandabúa og 16. besti tími Evrópubúa frá upphafi vega. Norðurlandametið á Svíinn Alexander Dale Oen, 58,14. „Ég hef horft til þess frá árinu 2002 að komast undir eina mínútu í 100 m bringusundi,“ sagði Jakob Jóhann spurður út hversu lengi hann hafi horft til þess að brjóta einnar mínútu múrinn.

Jakob Jóhann hjó nærri Norðurlandameti Danans Chris Christiansens í 200 m bringusundi sem sett var fyrr á þessu ári. Aðeins munar 55/100 úr sekúndu á tíma Jakobs Jóhanns og Norðurlandametinu sem er 2.07,20 mínútur. Árangur Jakobs Jóhanns setur hann í þriðja sæti á afrekslista Norðurlanda frá upphafi í þessari grein.

Nánar er rætt við Jakob Jóhann í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is