Vetrarleikir í Vancouver kosta sitt
Aðeins tveir mánuðir eru í setningu vetrarólympíuleikanna í Vancouver í Kanada. Borgin er sú stærsta til að halda vetrarleika en eftirvæntingin er efablandin vegna gríðarlegrar aukningar á tilkostnaði sem talinn er muni leiða til langs skuldahala sem tíma taki að borga niður.
Nánast allt er til reiðu til leikahaldsins í Vancouver og ólympíuloginn er á ferð um landið. Vegurinn til helstu skíðasvæðanna hefur verið breikkaður til að taka við aukinni umferð og ný hraðlest á teinum á brú mun flytja farþega frá flugvellinum og inn í borgina.
Margir bera þó kvíðboga vegna leikanna og óttast að kreppan og umframkeyrsla kostnaðar muni segja til sín árum og áratugum eftir að slökkt verður á ólympíueldinum við lokaathöfnina. Skattgreiðendur sjá fram á að þurfa standa undir skuldum vegna leikahaldsins lengi á eftir.
Í grein í blaðinu Georgia Straight í Vancouver, segir Jane Sterk, leiðtogi Græningjaflokks British Columbia, leikana hafa ekki verið fylkinu til framdráttar, miklu fremur muni þeir bitna á því og það jafnvel svo árum eða áratugum skiptir.
Framkvæmdanefnd leikanna segja kostnaðinn muni nema 1,8 milljarði dollara. Inni í þeirri tölu er þó ekki talinn með 1,5 milljarðar dollara sem flugvallarlestin hefur kostað. Ekki heldur milljarða dollara sem stækkun fjölmiðlasetursins við höfnina kostaði. Og heldur ekki 600 milljónir dollara sem endurbætur á veginum upp á skíðasvæðin á Whistlerfjalli kostuðu.Til marks um ónákvæmni í áætlanagerð var í fyrstu reiknað með að öryggisráðstafanir vegna leikahaldsins myndu kosta 175 milljónir dollara. Við fótskör leikanna er hins vegar ljóst að sá kostnaður verður langleiðina í milljarð dollara, eða meira en fimm sinnum hærri en í fyrstu var áætlað.
Leikarnir eru hinir þriðju sem fram fara í Kanada. Áður fóru vetrarleikar fram í Calgary 1988 og ólympíuleikar í Montreal sumarið 1976. Við lok þeirra síðarnefndu stóðu yfirvöld í Montreal og Quebec uppip með 1,6 milljarða dollara skuld sem tók 30 ár að borga upp.
Þegar opinber og óopinber kostnaður vegna leikanna í Vancouver er lagður saman þykir nær lagi að hann sé fremur á bilinu fjórir til sex milljarðar dollara í stað 1,8 milljarða, sem framkvæmdaraðilar halda fram að hann verði.
Hvað sem því líður þá er sá tilkostnaður ekki nema brot af því sem ólympíuleikarnir í Peking í fyrra kostuðu. Hann er sagður hafa verið 40 milljarðar dollara með öllu.





