Björgvin ætlar sér að gera góða hluti
Eftir Kristján Jónsson, kris@mbl.is
„Ég er rosalega vel stemmdur og hef verið að skíða rosalega vel undanfarið. Það hjálpaði náttúrlega mikið að komast aftur inn á topp 30 í heimsbikarnum um daginn. Æfingarnar hafa í kjölfarið gengið alveg svakalega vel. Formið er því til staðar og ég bara vonast til þess að allt smelli saman hjá mér,“ sagði Björgvin og vísar til þess að hann hafnaði í 24. sæti á heimsbikarmóti í Króatíu í janúar og jafnaði þar með sinn besta árangur í heimsbikarnum. Björgvin neitar því ekki að slíkur árangur svo skömmu fyrir leikana ýti verulega undir sjálfstraustið.
„Ég gaf upp mín markmið fyrir leikana í Tórínó og setti þá óþarfa pressu á sjálfan mig. Ég gef því markmið mín ekki upp að þessu sinni að öðru leyti en því, að ég er ekki að fara til Vancouver bara til þess að vera með, þó það sé ágætt þegar fólk er að þreyta frumraunina. Ég fer til þess að standa mig og gera góða hluti. Það verður allt gefið í botn og allar áhættur teknar. Ég hef unnið lengi að mínum markmiðum og hef fulla trú á að ég nái þeim.“
Viðtalið í heild sinni er að finna í Morgunblaðinu í dag.






