Blakmenn ráða landsliðsþjálfara

Landslið Íslands í blaki verða í eldlínunni á Evrópumóti smáþjóða í júní. stækka

Landslið Íslands í blaki verða í eldlínunni á Evrópumóti smáþjóða í júní. mbl.is

Apostol Apostolov og Michael Overhage hafa verið ráðnir landsliðsþjálfara kvenna og karla í blaki vegna næstu verkefna landsliðanna sem bæði taka þátt í riðlakeppni Evrópumóts smáþjóða sem fram fer á Möltu í júní.

Apostolov og Overhage þekkja vel til starfanna þar sem þeir hafa sinnt þeim  undanfarin ár.  Blaksamband Íslands segir í tilkynningu að báðir þjálfararnir leggi metnað í störf sín. Búast má við því að æfingahópar fyrir landsliðin verði valdir innan nokkurra vikna.

Riðlakeppnin á Möltu er eina verkefni landsliðanna enn sem komið er á þessu ári en konurnar keppa dagana 11.-13. júní og karlarnir 18.-20. júní.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí


finnur.is