Íþróttir
| Morgunblaðið
| 8.2.2010
| 8:09
Bjart framundan hjá KA í blakinu
Eftir Einar Sigtryggsson, sport@mbl.is
Karlaleikurinn fór 3:1 þar sem KA var mun sterkara liðið. Heimamenn byrjuðu með miklum látum og rúlluðu tveimur fyrstu hrinunum upp 25:15 og 25:13. Í næstu hrinu sýndu Þróttarar sínar betri hliðar og með flottri baráttu slökktu þeir á heimamönnum og unnu mjög örugglega 14:25. KA var svo sterkara liðið í lokahrinunni og vann 25:21.
Kvennaliðin spiluðu í kjölfar karlanna og þar var boðið upp á hörkuleik. KA marði 3:2 sigur eftir að hafa komist í 2:0. Með sigrinum tryggði liðið sér sæti í úrslitakeppninni en þangað eru HK, Fylkir og Þróttur Neskaupstað öll komin.
Í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag er rætt við Sigurð Arnar Ólafsson formann blakdeildar KA um gang mála hjá félaginu sem stefnir á sína fyrstu titla í 18 ár.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






