Stjarnan vann hrinu af HK

Frá kappleik í blaki. stækka

Frá kappleik í blaki. mbl.is

HK sigraði Stjörnuna 3:1 í Fagralundi í kvöld í 1. deild kvenna í blaki í heldur tíðindalitlum leik. Helstu tíðindin eru kannski þau að HK skyldi lenda í basli með lið Stjörnunnar sem situr á botni deildarinnar með tvö stig, en HK er í efsta sæti.

Líkt og í fyrri leik liðanna í haust leyfði Zdravko Demirev, þjálfari HK, yngri leikmönnum liðsins að spreyta sig stóran hluta viðureignarinnar. HK er sem fyrr á toppi 1. deildar með 16 stig. Þróttur Nes er í öðru sæti með 12 stig en hefur leikið einu leik færra.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar


finnur.is