TBR í fjórum efstu sætunum

Lið frá TBR urðu í fjórum efstu sætunum í deildakeppni Badmintonsambands Íslands sem lauk í TBR-húsunum í gær. TBR verður því að vanda fulltrúi Íslands í Evrópukeppni félagsliða sem fram fer næsta sumar.

Það var ekki nóg með að TBR ætti efstu liðin í Meistaradeildinni, þeirri efstu í mótinu, því lið frá félaginu röðuðu sér líka í þrjú efstu sæti A-deildar og í fjögur efstu sæti B-deildar, en keppt er í þessum þremur deildum.

Sigurliðin þrjú, TBR Yfirvaldið sem vann Meistaradeildina, TBR Merðir sem vann A-deildina og TBR Harðjaxlar sem vann B-deildina eru á meðfylgjandi myndum.

Alls tóku 23 lið þátt í mótinu, þar af þrettán frá TBR, og lokastaða mótsins varð þessi:

Meistaradeild:
1. TBR Yfirvaldið
2. TBR Leynivopnin
3. TBR Öllarar
4. TBR Gellurnar
5. BH - M
6. ÍA - M

A-deild:
1. TBR Merðir
2. TBR Geitungar
3. TBR Heimsmeistarar
4. BH - A
5. Smashing Pumpkins
6. Afturelding - A
7. ÍA - A
8. TBR Púkar

B-deild:
1. TBR Harðjaxlar
2. TBR Baráttujaxlar
3. TBR Vinirnir og Vespur
4. TBR Núggatbitar
5. BH naglar
6 TBR Huldufólkið
7. Afturelding ungir
8. Afturelidng Spaðarnir
9. Huginn/TBR

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar


finnur.is