Golf og fótbolti fá hæstu ríkisstyrkina

Knattspyrna er sú íþrótt sem flestir Íslendingar iðka og fær mest í sinn hlut úr ... stækka

Knattspyrna er sú íþrótt sem flestir Íslendingar iðka og fær mest í sinn hlut úr ríkissjóði ásamt golfinu. mbl.is/Skapti

Tvær fjölmennustu íþróttagreinar landsins, knattspyrna og golf, fá mest í sinn hlut úr ríkissjóði á árinu 2010, rúmar 3,4 milljónir króna hvor grein. Framkvæmdastjórn ÍSÍ tilkynnti í dag að hún hefði samþykkt tillögur Fjármálaráðs ÍSÍ um úthlutun ríkisstyrks til sérsambanda ÍSÍ fyrir árið 2010.

Framlag á fjárlögum Alþingis fyrir árið 2010 var skert um 6,3 milljónir króna frá fjárlögum 2009. Framlög til sérsambanda skerðast að jafnaði um 9,2% frá fyrra ári, utan þeirra sérsambanda sem hlutu lægstu styrki í úthlutun 2009.

Í tilkynningu frá ÍSÍ segir að sem fyrr sé áhersla lögð á að stuðla að því að hvert sérsamband standi undir nauðsynlegri þjónustu við sambandsaðila með rekstri eigin skrifstofu.

Styrkirnir verða greiddir út í þrennu lagi.  Fyrsta greiðsla 30. mars n.k., önnur greiðsla 30. júlí n.k. og lokagreiðsla 30. nóvember.  Lokagreiðslan er háð skilum á fjárhagslegu uppgjöri og greinagerð um nýtingu styrksins. 

Styrkirnir skiptast þannig á milli sérsambandanna:

3.451.479 kr.:
Golfsamband Íslands
Knattspyrnusamband Íslands

3.088.166 kr.:
Handknattleikssamband Íslands
Körfuknattleikssamband Íslands
Landssamband hestamannafélaga
Sundsamband Íslands

2.724.852 kr.:
Blaksamband Íslands
Badmintonsamband Íslands
Dansíþróttasamband Íslands
Frjálsíþróttasamband Íslands
Fimleikasamband Íslands
Íshokkísamband Íslands
Skíðasamband Íslands

2.270.710 kr.:
Júdósamband Íslands
Karatesamband Íslands
Skotíþróttasamband Íslands
Taekwondósamband Íslands

1.998.225 kr.:
Borðtennissamband Íslands
Skautasamband Íslands
Keilusamband Íslands
Mótorhjóla- og snjósleðasamband Íslands
Siglingasamband Íslands
Skylmingasamband Íslands
Tennissamband Íslands

1.000.000 kr.:
Glímusamband Íslands
Íþróttasamband fatlaðra

300.000 kr.:
Lyftingasamband Íslands

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar


finnur.is