Íþróttir
| Morgunblaðið
| 9.2.2010
| 17:53
Vel klædd á vetrarleikum í Vancouver
Fjórir Íslendingar eru á leið til Vancouver í Kanada þar sem vetrarólympíuleikarnir verða settir um næstu helgi. Þau Árni Þorvaldsson, Björgvin Björgvinsson, Íris Guðmundsdóttir og Stefán Jón Sigurgeirsson keppa öll í alpagreinum á leikunum og í gær mættu þau í Kringluna og sýndu þar fatnaðinn sem þau klæðast þegar þau ganga inní Ólympíuhöllina á setningarhátíðinni.
Fatnaðurinn er íslenskur, frá 66°Norður, og samsettur af jökkum, húfum, buxum og peysu. Keppni hefst á föstudag og setningarathöfnin er aðfaranótt laugardags, að íslenskum tíma.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






