Kearney kom í veg fyrir kanadískan sigur
Hannah Kearney fagnar sigrinum í hólasviginu en Jennifer Heil, sem varð önnur, er vinstra megin við hana. Reuters
Suður-Kórea og Bandaríkin fengu þau tvenn gullverðlaun sem keppt var um í nótt á vetrarólympíuleikunum í Vancouver. Heimamenn sáu á bak gulli þegar hin bandaríska Hannah Kearney hirti fyrsta sætið í hólasvigi með frjálsri aðferð.
Hún náði að skáka Ólympíumeistaranum kanadíska, Jennifer Heil, sem vann greinina á síðustu leikum. Kearney er sjálf með mikil tengsl við Kanada en móðir hennar er þaðan. Shannon Bahrke frá Bandaríkjunum varð þriðja.
Þar með hefur Kanada enn ekki tekist að vinna gull á heimavelli á Ólympíuleikum því það náðist hvorki á sumarleikunum í Montreal 1976 né á vetrarleikunum í Calgary 1988.
Lee Jung-Su frá Suður-Kóreu sigraði í 1.500 m skautahlaupi karla. Apolo Anton Ohno frá Bandaríkjunum varð annar og hefur nú fengið alls sex Ólympíuverðlaun á þremur leikum, en þriðji varð landi hans J.R. Celski. Suður-Kórea stefndi á þrefaldan sigur í greininni og hann blasti við þar til tveir keppendur þjóðarinnar rákust saman í síðustu beygjunni og féllu úr keppni. Bandaríkjamennirnir tveir nýttu sér það og komust á verðlaunapallinn í staðinn.







