Metsigur Kanada í íshokkí kvenna

Magnað sjónarhorn þar sem Jayna Hefford skorar fyrir Kanada hjá Zuzana Tomcikova í marki Slóvakíu. stækka

Magnað sjónarhorn þar sem Jayna Hefford skorar fyrir Kanada hjá Zuzana Tomcikova í marki Slóvakíu. Reuters

Kvennalið Kanada í íshokkí kvenna vann í nótt stærsta sigurinn í sögu greinarinnar á Ólympíuleikum þegar það burstaði lið Slóvakíu með 18 mörkum gegn engu.

Kanadísku konurnar áttu sjálfar fyrra metið en þær lögðu Ítali að velli, 16:0, í Tórínó fyrir fjórum árum. Þær voru þó langt frá karlametinu sem Kanadamenn eiga líka en Kanada rótburstaði Sviss, 33:0, árið 1924.

Svíþjóð vann Sviss, 3:0, í fyrsta leik kvennakeppninnar í Vancouver í gær.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Ólympíuleikar — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 29. apríl

Þriðjudaginn 10. apríl


finnur.is