Sviss krækti í fyrsta gullið

Simon Ammann á fleygiferð á stökkpallinum. stækka

Simon Ammann á fleygiferð á stökkpallinum. Reuters

 Það voru Svisslendingar sem hrepptu fyrstu gullverðlaunin á vetrarólympíuleikunum í Vancouver þegar Simon Ammann sigraði í skíðastökki af 90 metra palli í kvöld. Hann er þar með orðinn þrefaldur Ólympíumeistari því Ammann hreppti tvenn gullverðlaun í Salt Lake City árið 2002.

Ammann stökk lengst allra, 108 metra, og fékk samtals 276,5 stig. Adam Malysz frá Póllandi fékk silfrið og 269,5 stig og Gregor Schlierenzauer frá Austurríki fékk bronsið og 268 stig.

Gull númer tvö fékk Anastasiya Kuzmina frá Slóvakíu sem sigraði í 7,5 km skíðaskotfimi kvenna, frerkar óvænt. Magdalena Neuner frá Þýskalandi, sem þótti mun sigurstranglegri, varð önnur og Marie Dorin frá Frakklandi þriðja.

Þriðja gull leikanna fékk síðan Sven Kramer frá Hollandi sem sigraði í 5.000 metra skautahlaupi karla á 6:14,60 mínútum. Lee Seung-Hoon frá Suður-Kóreu varð annar á 6:16,85 mínútum og Ivan Skobrev frá Rússlandi þriðji á 6:18,05 mínútum.

Kramer er talinn líklegur til að hreppa þrenn gullverðlaun í Vancouver og endurtaka með því afrek Johanns Olavs Koss frá Noregi sem fékk þrjú gull í Lillehammer árið 1994.

Anastasiya Kuzmina kemur í mark í skíðaskotfiminni.

Anastasiya Kuzmina kemur í mark í skíðaskotfiminni. Reuters

Sven Kramer fagnar sigrinum í skautahlaupinu.

Sven Kramer fagnar sigrinum í skautahlaupinu. Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Ólympíuleikar — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 29. apríl

Þriðjudaginn 10. apríl


finnur.is